Vordagar í Reykhólaskóla

14. maí 2026

Vordagar í Reykhólaskóla

Vordagar skólans fóru fram dagana 11.–13. maí og tókst afar vel til. Flestir nemendur á mið- og elstastigi völdu sér sauðburðarverkefni og fengu þar fjölbreytta og lærdómsríka reynslu. Einnig tóku nokkrir nemendur á yngsta stigi þátt í þeim verkefnum, en aðrir mættu í staðbundinn skóla.

Á Reykhólum fengu nemendur á yngsta stigi meðal annars að fara í vinnustaðakynningar, fræðast um nærsamfélagið og taka þátt í útieldun. Nemendur á mið- og elstastigi elduðu pasta, lærðu ný spil og gögl, stunduðu útivist og tóku þátt í fjölbreyttum verkefnum og samveru.

Vordagarnir voru bæði skemmtilegir og lærdómsríkir og viljum við þakka öllum sem komu að verkefnunum fyrir sitt framlag.