Við grunn- og leikskóla skal starfa skóla-/foreldraráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólastjóri hefur forgöngu um stofnun skólaráðs. Hann situr í skólaráði og stýrir starfi þess. Auk skólastjóra sitja í skólaráði tveir fulltrúar foreldra, tveir fulltrúar kennara, einn fulltrúi annars starfsfólks skólans, tveir fulltrúar nemenda og einn fulltrúi grenndarsamfélags eða viðbótarfulltrúi úr hópi foreldra valinn af öðrum fulltrúum skólaráðs. Staðgengill skólastjóra stýrir skólaráði í forföllum skólastjóra. Hér er að finna reglugerð fyrir skólaráð.
Skóla og foreldraráð Reykhólaskóla er sameiginlegt fyrir leik- og grunnskólastig Reykhólaskóla. Ráðið skal skipa níu einstaklingum til tveggja ára í senn. Ákveðið var að helmingur ráðsins endurnýist á ári hverju og helmingur sitji áfram með nýjum fulltrúum.
Skólaráð Reykhólaskóla skólaárið 2026-2027 skipa:
- Ásta Sjöfn Kristjándóttir, skólastjóri
- Íris Ósk Sigþórsdóttir, fulltrúi leikskólans
- Kolfinna Ýr Ingólfsdóttir, fulltrúi kennara
- Ólafía Sigurvinsdóttir, fulltrúi grenndarsamfélags
- Ingólfur Birkir Eiríksson, fulltrúi nemenda
- Gretar Þór Ólafsson, fulltrúi nemenda
- Agnieszka Anna M Kowalczyk, fulltrúi foreldra grunnskólans
- Embla Bachmann, fulltrúi foreldra leikskólans
- Dísa Sverrisdóttir, fulltrúi starfsmanna
Varamenn skólaráðs eru:
- Hrefna Jónsdóttir, varafulltrúi kennara
- Sigríður Ísleifsdóttir, varafulltrúi foreldra grunnskólans
- Hafrós Huld Einarsdóttir, varafulltrúi foreldra leikskólans
- Málfríður Lilja Vilbergsdóttir, varafulltrúi nemenda
Funda- og starfsáætlun skólaráðs 2025-2026:
21. október. Funda- og starfsáætlun skólaráðs rædd og uppfærð ef þörf þykir. Starfsáætlun skólans, námsvísir, skóladagatal og reglur skólans ræddar.
18. nóvember. Samstarf heimilis og skóla, líðan og velferð nemenda, stefnur skólans kynntar, skólareglur og símareglur samþykktar. Umræður um fyrirkomulag skólaþings.
18. mars. Opinn fundur skólaráðs. Samstarf við grenndarsamfélagið. Skóladagatal og fyrirkomulag næsta skólaárs. Starfsemi foreldrafélagsins kynnt. Niðurstöður skólaþings. Önnur auglýst dagskráratriði.
19. maí. Ráðningar starfsmanna. Mat á starfsáætlun ársins, innra mats skýrsla – drög. Önnur auglýst dagskráratriði.
Hér er fundaráætlun og fundargerð skólaráðs 2025-2026