Danskur farkennari í Reykhólaskóla

13. febrúar 2026

Í janúar og febrúar er danskur farkennari hjá okkur í Reykhólaskóla. Grete Falt-Hansen kom til okkar strax í byrjun nýs árs og hefur hlutverk hennar verið að efla dönskukennslu, með sérstakri áherslu á talað mál.

Á þessum mánuðum höfum við verið með tvöfalda dönskukennslu og hafa nemendur sýnt miklar framfarir. Grete hefur kennt nemendum á öllum stigum og hefur það skilað sér í auknum orðaforða, betri skilningi og auknum áhuga á náminu. Hún beitir fjölbreyttum og skapandi kennsluaðferðum og hefur verið bæði lærdómsríkt og hvetjandi að fá hana til starfa hjá okkur.

Grete hefur einnig skreytt ganginn okkar reglulega með dönskum bókum, sett upp nýtt þema hverju sinni og boðið upp á ratleik á dönsku í hverri viku. Það hefur vakið mikla forvitni og skemmtilega þátttöku hjá nemendum.

Í lok febrúar heldur Grete áfram til Hólmavíkur fram að páskum og fer síðan eftir páska til Þingeyrar.

Við þökkum Grete kærlega fyrir samveruna og þann innblástur sem hún hefur fært okkur í námi og kennslu.