-
Reykhólaskóli
Vellíðan - Samvinna - Kjarkur
Fyrstu lotu skólastarfsins lauk í seinni hluta október þar sem unnið var markvisst með útinám, samstarf, sköpun og tengsl við nærsamfélagið og sögu þess. Meginþema lotunnar var bókin Virkisvetur (1959) eftir Björn Th. Björnsson sem fjallar um merka atburði í sögu Reykhóla og fyrsta skotbardaga sem sögu fara af hér á landi. Sögusvið bókarinnar [Meira...]
Skólaár Reykhólaskóla 2025-2026 hefst með skólasetningu fimmtudaginn 21. ágúst kl. 16. Skólasetning verður í matsal nemenda. Foreldrar eru hvattir til að fylgja börnum á skólasetningu. Nemendur mæta svo í skólann skv. stundarskrá föstudaginn 22. ágúst.
Gleðileg jól frá Reykhólaskóla!Kæru nemendur, foreldrar og aðrir velunnarar Reykhólaskóla.Nú þegar jólahátíðin nálgast viljum við þakka fyrir samstarfið á haustönn. Það hefur verið einstaklega gefandi og skemmtilegt að fylgjast með framförum nemenda okkar og þeirri miklu gleði sem einkennir skólastarfið.
Glæsileg fullveldishátíð í Reykhólaskóla Reykhólaskóli stendur fyrir sinni árlegu fullveldishátíð fimmtudaginn 30. nóvember 2023. Hátíðin er orðin fastur liður í skólastarfinu og er mikilvægur þáttur í að fagna fullveldi Íslands og kenna nemendum um sögu landsins á skemmtilegan og uppbyggilegan hátt. Dagskrá hátíðarinnar Húsið opnar klukkan 16:30 og er gestum bent á að mæta [Meira...]
Nemendur eru að vinna að ýmsum jólaverkefnum í þriðju lotu. Hér má sjá afrakstur vinnunar hjá unglingastigi. Jólin koma-Vefsíða
