Í janúar fengum við Þórdísi Sigmarsdóttur, hönnun- og smíðakennara, í heimsókn til okkar og var það dásamleg tilbreyting í skólastarfinu. Þórdís kenndi nemendum á öllum stigum smíði tvisvar í viku og bauð nemendum á mið- og elsta stigi jafnframt upp á leðurvinnu og teikningu í vali.
Nemendur voru afar ánægðir með þessa tilbreytingu og fóru heim með áhugaverð verkefni í hverri viku sem þau hönnuðu og útbjuggu hjá henni.
Við þökkum Þórdísi kærlega fyrir komuna og hlökkum til að fá hana aftur til okkar í sérverkefni.

