Klæðnaður barnanna þarf að vera í samræmi við veðurfar og hafa ber í huga að veðrið getur breyst snögglega. Reykhólaskóli og þar með leikskóladeild er útinámsskóli og því ber að huga að börnin hafi viðeigandi klæðnað þar sem farið er út í öllum veðráttum.
- Merkja skal öll föt barnanna á greinilegan hátt, sérstaklega útiföt.
- Nauðsynlegt er að hafa allan fatnað í réttri stærð í leikskólanum.
- Gott er að hafa inniskó eða sokka með stömum botni sér í lagi á yngri börnin sem eru að læra að fóta sig.
- Oft er tískufatnaður ekki heppilegastur fyrir leikskóla þar sem börn eru hvött til að klæða sig sjálf, vanda þarf því valið á útifatnaði og t.d. passa að rennilásar sé ekki á hliðinni á flíkum svo þau geti rennt upp sjáf eða flíkur með of miklu auka pjátri sem flækir sjálfsbjörgina til muna.
- Fingravettlingar henta börnum yngri en 2 ára illa þar sem þau eru ekki búin að átta sig á staðsetningu fingra.
Aukaföt barnanna eru geymd í plastkössum á hillu í forstofunni, og mikilvægt að bæta í þá eftir þörfum, á kössunum er skráð það sem nauðsynlegt er að sé alltaf í þeim. Gott er að temja sér það að þegar eitthvað er sent heim úr leikskóla að koma þarf með sambærilegan klæðnað í aukafataboxið morguninn eftir.
Í leikskólanum er unnið með ýmis efni og áhöld sem geta skemmt föt. Vinsamlegast gætið þess að barnið sé ekki í fötum sem ykkur er sérstaklega ant um, þar sem leikskólinn getur ekki ábyrgst óvænt óhöpp í daglegu starfi.
Það sem leikskólinn óskar eftir að sé alltaf í aukafatakössum barnanna er:
Sokkar x 2
Buxur x 2
Langerma peysa x 1
Bolir x 2
Nærföt/samfella x 2 (fleiri ef barn er í wc þjálfun)
Útifatnaður :
Útifatnaður eru vinnufatnaður barnanna og þarf því að vera í samræmi við veðurfar sem er síbreytilegt. Köld börn njóta ekki ánægjulegrar útiveru.
Við óskum eftir að eftirfarandi sé í hólfi barnanna:
- Kuldagalli,
- regnföt.
- 2x vettlingar þykka og þunna.
- Húfu bæði venjulega og lambhúshettu.
- Þykka sokka.
- Hlýja peysu.
- hlýjar buxur (ekki innstalag heldur yfir)
- ullarsokkar.
- Kuldaskór
- Stígvél.
Þegar fer að vora fer vetrarfatnaður heim og léttari klæðnaður tekur við.þá er gott að taka út kuldafatnað og bæta inn léttari peysum, buffi, sólhatti/derhúfu.