Leikskólinn er ætlaður frískum börnum og tekur mið af því að þau geti tekið fullan þátt í leik og starfi bæði úti og inni.
Börn sem ekki eru fullfrísk ættu ekki að koma í leikskólann bæði vegna smithættu og til að draga úr vanlíðan barns.
Ef barn veikist í leikskólanum, er forráðamönnum gert viðvart. Eins og þekkt er þá eru ung börn fremur kvefsækin og er það ávallt í höndum foreldra hverju sinni hvort það sendi barn í leikskólann þegar svo er. Ef barn er ekki með hita og hresst að öllu öðru leyti, þá teljum við óhætt að taka á móti því, en við munum hafa samband við forráðamenn ef okkur lýst þannig á að barn geti ekki tekið þátt í starfinu og/eða sýni skýr merki um vanlíðan, án þess að vera með hita. Barn með sótthita er ekki talið hæft í leikskólastarf þar sem áreiti leikskólastarfsins er annað en heima, ef sóttihiti uppgörvast í leikskóla eru foreldrar látnir vita og beðnir um að sækja barn sitt.
Leikskólinn miðar við að sótthiti sé um 37,7° eða hærri áður en hringt er í foreldra, yfirleitt eru börn þó farin að sýna önnur merki um vanlíðan áður en starfsmenn taka stöðu á sótthita. Hvert og eitt barn er misjafnt og því um mismunandi mat á einstaklingum að ræða.
Þegar barn kemur ekki í leikskólann vegna veikinda er mikilvægt að foreldrar hringi í leikskólann og tilkynni veikindin, einnig má senda skilaboð í gegnum Völu.
Ekki er hægt að fá að vera inni í útiveru til að fyrirbyggja veikindi. Reykhólaskóli er útinámsskóli og því er útivera í öllum veðráttum stór þáttur í starfinu. Barn sem ekki getur tekið þátt í öllu starfi er ekki talið full frískt og ætti því að vera heima.
Ekki eru gefin lyf af neinu tagi í leikskólanum nema til komi vottorð frá lækni um að lyfjagjöf sé nauðsynleg þann tíma sem barnið dvelur í leikskólanum. Ef barn hefur greinst með óþol, ofnæmi, astma eða einhvers annars sem krefst sérstakrar meðferðar, skal skila vottorð því til staðfestingar. Endurnýja þarf læknisvottorð á ársgrundvelli.
Ráðleggingar um viðmiðun veikinda í leikskólum.