Veðurviðvaranir

Ef appelsínugul eða rauð viðvörun er í gildi þá er öllu skólahaldi aflýst (grunn-, leik- og tónlistarskóli).

Ef gul viðvörun er í gangi þá meta foreldrar hvort þeir senda börn sín í leikskólann og skólabílstjórar meta hvort þeir keyri. Ávallt skal hafa beint samband við skólabílstjóra og senda skilaboð til skólans í gegnum Karellen eða hringja í síma 434-7731.

Ef leikskólastarf er fellt niður er slíkt tilkynnt með skilaboðum á Völu, tölvupósti eða á heimasíðu skólans.