Skólaakstur

Skólaakstur er skipulagður miðað við þarfir grunnskóladeildar, heimilt er þó að flytja leikskólabörn með skólabílum ef pláss er í bílnum enda lengist dagleg akstursleið skólabíls ekki eða einungis óverulega. Leikskólabarni er heimilt að fara með skólabílnum þegar það hefur náð tveggja ára aldri.

Ef leikskóladeild fer í haust eða vorferð er börnum leikskóladeildar óheimilt að ferðast með einkabílum starfsmanna og því einungis notast við skólabifreiðar.

Ef aðrir nemendur leikskóladeildar en þeir sem eiga fast pláss fá far með skólabíl heim til barns sem ferðast daglega með skólabíl bera foreldrar viðkomandi barns alla ábyrgð á að hafa samband við skólabílstjóra til að fá tilskilið leyfi um að pláss sé í bílnum og ber þeim einnig að láta starfsmann leikskóla vita.

Bílstjórarnir eru feðgarnir Þráinn sem ekur í Gufudalssveit og

Vilberg sem ekur innsveitina og Gilsfjörð.

Skólabílar koma að skóla rétt fyrir kl 08:15 og fara frá skóla kl. 14:40 mánudag, 15:00 þriðjudag- fimmtudags og 12:30 á föstudögum.

Ef skólabíll á ekki að sækja barn heim að morgni, vinsamlegast látið bílstjóra vita tímanlega. Þráinn s: 434-7774/895-7774 og Vilberg s: 434-7772/863-2059