Sérstarkar áherslur í starfinu

Vikupóstur

Vikupóstur er samskiptapóstur til foreldra sem upplýsir um verkefni liðinnar viku og hvað er á döfinni næstu vikuna. Í vikupósti koma einnig fram upplýsingar um starfsdaga og aðra viðburði á vegum skóla. Vikupóstur er einungis sendur í gegnum póstfang foreldra/forráðamanna, oftast á föstudögum. Aðrar mikilvægar tilkynningar og áminningar fara einnig í gegnum karellenkerfið.

 

Heilsueflandi leikskóli snýst um að vin­na markvisst að heil­sue­flingu í leik­skólanum með það að mark­miði að bæta heil­su og vel­líðan barna og starfs­fólks.  

Heil­sue­flan­di leik­skóli er sameigin­leg vin­na stjór­nen­da og starfs­fólks. Un­nið er markvisst að því að skapa umhver­fi og aðstæður þar sem allir hafa tæk­ifæri til að blóm­stra í lífi og star­fi.

Vinátta – Blær felst í því að fyrirbyggja einelti með því að móta góðan skólabrag, eiga góð samskipti og hafa jákvætt viðhorf til allra í hópnum. Lögð er sérstök áhersla á að ná til þeirra barna (og fullorðinna) sem verða vitni að einelti og hvetja þau til að bregðast við því. Unnið verður með Blæ í öllum hópum, en þetta er fyrsti veturinn sem unnið verður með Blæ. Undirþemu eru vinátta, umburðarlyndi, virðing, umhyggja, hugrekki. Meginmarkmið þemans er virðing fyrir hverju öðru og koma orði á tilfinningar. Auk þess að börnin kynnist því sem tilheyri hverju undirþema fyrir sig. 

Lubbi finnur málbeinið er íslenskt námsefni, eftir Eyrúnu Ísfold talmeinafræðing, með áherslu á hljóðkerfis- og hljóðavitund. Lubbi er íslenskur fjárhundur sem langar mikið til að læra að tala. Þá þarf hann að læra öll íslensku málhljóðin. Hann veit að þegar hann hefur lært þau öll losnar um málbeinið og hann getur leyst frá skjóðunni. Í Hólabæ er unnið með Lubba í öllum hópum. Lærum og leikum með hljóðin er fjölbreytt framburðarefni eftir Bryndísi Guðmundsdóttur sem er ætlað börnum, foreldrum og fagfólki til að undirbúa rétta hljóðmyndun og styrkja undirbúningsfærni fyrir lestur. Málhljóðin í íslensku eru kynnt til sögunnar í sömu röð og barnið tileinkar sér hljóðin og þyngdarstigið eykst um leið og leikið er með skemmtilegar æfingar í bókum, spilum og smáforritum. Lærum og leikum með hljóðin er notað samhliða Lubba.

 

Tákn með tali: Tákn með tali (TMT) er tjáningarform, ætlað heyrandi einstaklingum sem eiga við mál- og talörðugleika að stríða.
Það er byggt á látbragði, svipbrigðum, táknum og tali. Táknunum er skipt í:

  • Náttúruleg tákn- byggjast á því að athöfn er leikin eða eiginleikum lýst.
  • Eiginleikum/samræmt tákn – eru flest fengin að láni úr táknmáli heyrnarlausra.

Í TMT eru táknin alltaf notuð samhliða töluðu máli og aðeins lykilorð hverrar setningar, eitt eða fleiri, táknuð. TMT er leið til tjáskipta jafnframt því sem hún örvar málvitund og málskilning barna.

 

Sól og Litla sól: Eru bækur sem hugsaðar eru sem innblástur og hugmyndabanki í vinnu með málþroska ungra barna.

 

Iðjuþjálfun. Í Hólabæ er starfandi iðjuþjálfi 5-7 stundir í viku, hver stund er um 20 mínútur. Iðjuþjálfi vinnur með þau börnum sem þurfa á þurfa á að halda, bæði einstaklingslega og í hóp. Setur upp skimunaráætlun fyrir leikskóladeild og er í náinni samvinnu með deildarstjóra.

 

Hreyfing. Tvisvar sinnum í viku fara Græni og Rauði hópur í hreyfingu í íþróttasal. Þetta hefur mælst mjög vel fyrir og samræmist vel markmiðum Aðalnámskrár, þar sem fram kemur að börn eigi að fá tækifæri til fjölbreyttrar hreyfingar. Einnig fara nemendur í frjálsar stundi í íþróttasal með kennurum.

 

Afmæli. Þegar barn á Hólabæ á afmæli, fær það að bjóða öllum börnunum í sínum hóp í ávaxtastund. Þar er skreyttur bakki með fána og jafnvel bætt við einhverju óvæntu, t.d. grænmeti sem jafnan er ekki í hefðbundinni ávaxtastund, afmælissöngurinn er sungin í tilefni dagsins í söngstund. Í síðdegishressingu fær barnið að bjóða upp á kalt kakó og ristað brauð með áleggi og kex eða annað sætmeti. Barnið sem á afmæli fær kórónu, sem það skreytir sjálft og fær að taka með sér heim í lok dags. Þá er tekin mynd af barninu með kórónu og sett í ferilmöppu barnsins.

Við mælumst til þess að boð í afmælisveislur fari fram á öðrum vettvangi en á leikskóla til að skapa ekki óþarfa áhyggjur og/eða meting milli barnanna.