Um Hólabæ og aðlögun

Leikskólinn Hólabær er hluti af Reykhólaskóla. Hólabær var stofnaður árið 1992 af vöskum konum í samfélaginu.

Leikskólinn og grunnskólinn var sameinaður árið 2012 undir merkjum Reykhólaskóla. Markmið með sameiningunni var m.a. að ná fram meira samstarfi og samfellu milli skólastiga. Ár frá ári hefur samstarfið aukist og fá 5 ára börnin að fara í heimsóknir í grunnskólann og 1. bekkur kemur í heimsókn í leikskólann. Hólabær er í dag samrekinn leik og grunnskóladeild undir heiti Reykhólaskóla, leikskóladeildin hélt þó nafninu sínu og gengur enn í dag undir nafninu Hólabær.

Upphaf leikskólagöngu

Við upphaf leikskólagöngu fá foreldrar/forsjáraðilar upplýsingar hvað varða leikskólastarfið, svo sem skólanámskrá, starfsáætlun, sérfræðiþjónustu innan leikskóla ef það á við. Á aðlögunartíma veita foreldrar/forsjáraðilar upplýsingar um barnið, aðstæður þess, reynslu og áhugasvið. Upplýsingar um barnið eru trúnaðarmál. Í upphafi leikskólagöngu barns fær það góðan tíma til að aðlagast leikskólanum, umhverfi hans og starfsfólki. Foreldrar eru mikilvægir samstarfsaðilar leikskólans og er mikilvægt að koma þeim skilaboðum á framfæri við upphaf leikskólagöngu barnsins.

Aðlögun í leikskóla

Skömmu áður en leikskólaganga barnsins hefst fá foreldrar/forráðamenn tölvupóst um boð í aðlögun.. Tengiliður er úthlutaður fyrir barn í aðlögun sem tekur á móti barni þann dag sem aðlögun hefst. Vinnureglur leikskólans eru þær að ef um annað mál en íslensku ræðir þá fær leikskólinn aðstoð hjá túlki til þess að koma öllum upplýsingum vel og greinilega til skila. Starfsfólk gengur úr skugga um hvort nauðsynlegt sé að nota þjónustu túlka í samtölum. Móttökusamtal er tekið í aðlögunarfeli sem fer þannig fram að forráðamaður fyllir út skjal með spurningum ásamt spjalli við tengilið barnsins. Barnið í brennidepli í spjalli og leitast er eftir að kynnast barninu og fjölskyldu þess sem best áður en aðlögun hefst. Í samtalinu er einnig farið yfir það hver tengiliður fjölskyldunnar verður í aðlögunarferlinu. Tengiliður er ákveðinn starfsmaður sem verður tengiliður fjölskyldunnar á meðan á aðlögun stendur. Einnig eru foreldrar/forráðamenn spurðir hver muni vera til staðar meðan á aðlögun stendur og það er m.a. til þess að athuga hvort þurfi að notast við túlkaþjónustu í aðlögun. Foreldrar/forráðamenn eru þá beðnir um að láta vita ef eitthvað breytist á síðustu stundu varðandi hver kemur með barninu fyrstu dagana. Deildarstjóri sendir bréf um aðlögunarferlið til foreldra/forráðamanna í tölvupósti stuttu áður en aðlögun hefst. Nánar um aðlögun má lesa í árlegri starfsáætlun skólans þar sem má finna uppfærðar tímasetningar.

Mæting barna

Þegar barn kemur í leikskólann er mikilvægt að því sé fylgt alla leið inn á deild þar til starfsmaður tekur á móti því. Þegar barnið er sótt þarf að láta starfsfólk vita, einnig þarf að láta vita ef einhver annar en foreldri sækir barnið. Stefna leikskólans er að börn yngri en 12 ára komi ekki ein með nemendur að morgni eða sæki nemendur síðdegis í leikskólann. Mikilvægt er að tilkynna veikindi og leyfi þegar barn er ekki í leikskóla, það má gera í gegnum Völu eða í síma 434-7731.

Vinnutími starfsmanna er skipulagður með tilliti til dvalartíma barnanna. Mikilvægt er að virða dvalartíma bæði barnanna og starfsmanna. Ef foreldrar eru ekki komnir, þegar 5 mínútur eru liðnar frá því að umsaminn vistunartími er útrunninn, er hringt heim. Foreldrum er gert að greiða aukagjald sem munar þeim tíma ef börnin koma of snemma eða þau eru sótt utan umsamins dvalartíma.

Reynt er að mæta óskum um breytingum á dvalartíma, ósk um breytingu þarf að berast fyrir 20. hvers mánaðar og tekur að jafnaði gildi 1. hvers mánaðar. Reynt að koma til móts foreldra/aðstandendur ef tímabundnar breytingar eiga sér stað.

Ekki er æskilegt að barn mæti á matmáls eða hvíldartíma, sem er frá 11:00-12:30, fer þó eftir hópum og samtali við starfsmann. 

Æskilegt er að látið sé vita ef barnið mætir seinna en vant er og þá hvenær er von á því þar sem starfið bíður ekki eftir að barn komi. Börnum þykir almennt óþægilegt að koma þegar starfsemi er hafin og eiga oft erfiðara með að kveðja foreldra eða koma sér inn í leik sem er hafinn, því mælum við með að halda sem mestri rútínu í mætingu barna.

 

Slagorð Hólabæjar er:

“Hólabær, þar sem gleðin býr”

Einkunarorð Reykhólaskóla er „Vilji er vegur“