Góð samvinna foreldra og leikskóla er forsenda fyrir árangursríkri dvöl barnsins í leikskólanum og góðri líðan. Foreldrar bera meginábyrgð á uppeldi barna sinna, en leikskólanám er viðbót við uppeldi foreldra, en er ekki ætlað að koma í stað þess.
Samvinna milli foreldra og leikskóla þarf að byggjast á gagnkvæmri virðingu, trúnaði og opnum samskiptum við báða foreldra. Markmið foreldrasamstarfs er að foreldrar fái sem bestar upplýsingar um þroska og stöðu barnsins í leikskólanum, stuðli að þátttöku foreldra í starfi leikskólans, auki samvinnu og samskipti leikskólans og heimilanna og veiti foreldrum upplýsingar um starfsemi skólans.
Foreldrar eru ávallt velkomnir í leikskólann til þess að taka þátt í því starfi sem þar fer fram, í samráði við starfsfólk. Þeir eru sérstaklega boðnir í foreldrakaffi, í einkasamtöl, foreldrafundi o.s.frv.
Foreldrafundir
Foreldrafundur á vegum foreldrafélags er haldin að hausti. Markmið fundarins er að kynna fyrir foreldrum helstu áhersluatriði í vetrarstarfinu, hittast og virkja foreldrafélag.
Í lögum um leikskóla nr. 90/2008 kemur fram að við hvern leikskóla skuli vera foreldraráð en heimilt er fyrir fámenna skóla að hafa sömu stjórn í foreldraráði og foreldrafélagi. Þar sem Reykhólaskóli er sameinaður skóli með þrjár deildir; grunnskóla, leikskóla og tónlistarskóla, er eitt foreldrafélag/foreldraráð.
Hlutverk foreldraráðs er að gefa umsagnir til leikskóla og nefndar um skólanámskrá og aðrar áætlanir er varða starfsemi leikskólans. Ráðið skal fylgjast með framkvæmd skólanámsskrár og annarra áætlana innan leikskólans og kynningu þeirra fyrir foreldrum. Einnig hefur foreldraráð umsagnarrétt um allar meiriháttar breytingar á leikskólastarfi.
Í stjórn foreldrafélags/foreldraráðsins, 2025-2027
Í stjórn foreldrafélags/foreldraráðsins eru:
- Embla Dögg Bachmann, formaður
- Sigríður Ísleifsdóttir, ritari
- Lovísa Ósk Jónsdóttir, gjaldkeri.
Foreldraviðtöl
Foreldraviðtöl leikskóladeildar eru tvisvar á ári og einnig þegar barn byrjar á leikskólanum. Umsjón viðtala er í höndum deildarstjóra og starfsmanns í þeim hóp er barn dvelur á.. Ef foreldrar óska eftir viðtali á öðrum tímum eða oftar er það velkomið. Foreldraviðtöl fara jafnan fram í október og apríl.