Gjaldskrá leikskóladeildar

Á fundi sveitarstjórnar 13. desember 2023 var sú ákvörðun tekin og samþykkt að gjaldtaka yrði á leikskóladeild utan 6 tíma vistunar. Þessi 6 stunda vistun kallast gæðatímar.

Gæðatími er tíminn frá kl. 9:00-15:00. Sá tími er gjaldfrjáls foreldrum, fer faglegt starf deildarinnar fram innan þess tíma.

Tímarnir utan gæðatíma voru gerðir gjaldskyldir frá og með 1. janúar 2024 taka mið af gjaldskrá Reykhólahrepps.

Ef foreldrar/forráðamenn hyggjast nýta tíma utan gæðatíma þurfa þeir að sækja um þá sérstaklega til deildarstjóra leikskóladeildar.

Börn 12-18 mánaða fá einungis úthlutað allt að 6 klst vistun innan gæðatíma þ.e. frá kl. 9:00-15:00 mánudag-fimmtudags en til kl. 14:00 stundir á föstudögum. 

Gjaldskrá má finna á vef Reykhólahrepps.