Fréttir

Appelsínugul viðvörun

Kæru foreldrar og forráðamenn.

Eins og þið eflaust vitið þá er spáð slæmu veðri á morgun. Eins og staðan er núna þá er spáð appelsínugulri viðvörun á milli kl. 10 – 16 og samkvæmt verklagsreglum Reykhólaskóla þá á skólahald að falla niður ef svo er.

 

„Óveður, Ef appelsínugul viðvörun er fyrir svæðið þá fellur allt skólahald niður og er það tilkynnt með SMS til foreldra og með tölvupósti á Mentor. Ef gul viðvörun er í gangi þá meta foreldrar hvort börn þeirra komi í skólann. „

 

Skólabílaakstur mun falla niður á morgun. Hvort að skólahald verði fyrir börnin í þorpunum verður metið kl. 7:30 og hvet ég alla foreldra til þess að fylgjast með á mentor eða á heimasíðu skólans.

Bestu kveðjur

Ásta Sjöfn

Til baka í fréttir