Krakkarnir á yngsta- og miðstigi tóku þátt í Svakalegu lestarkeppninni þar sem þau áttu að lesa eins mikið og þá gátu dagana 15. sept. til 6. október. Það voru 108 skólar sem tóku þátt eða 22.372 nemendur sem lásu. Krakkarnir okkar stóðu sig mjög vel en þau lásu að meðaltali 646 mínútur og lentu í 30. sæti af 108 skólum.
Til hamingju krakkar 