Fyrstu Spönninni okkar er lokið, Sjálfsmyndin mín.

Nemendur hafa verið til fyrirmyndar, það hafa m.a. allir gert sér markmið fyrir veturinn og spáð í styrkleika sína.
Í dag hófst verkefnið Hringrásarsamfélagið sem er Spönn tvö.
Næstu sex vikurnar ætlum við að kynnast þessu verkefni og taka þátt í því eins og við getum.
Verkefnin eru unnin inn á LearnCove og eru í Askinum. Til að fylgjast með framvindunni verða foreldrar/forráðamenn að fara með nemendum inn á Askinn og skoða verkefnin með þeim.

Nemendastýrð foreldraviðtöl standa yfir þessa vikuna.
Nokkrir hafa þegar komið í skólann, aðrir mæta næstu daga.