Kæru nemendur, foreldrar og forráðamenn
Skólahald í Reykhólaskóla, skólaárið 2026-2027 hefst mánudaginn 24. ágúst kl. 8:30. Skólasetning verður í matsal skólans og fara nemendur síðan með umsjónarkennurum sínum inn í stofur og kennsla hefst. Foreldra eru hvattir til þess að mæta með börnum á skólasetninguna. Stundarskrá mun birtast fljótlega inn á mentor en nemendur munu einnig fá hana afhenta á mánudaginn.
Hlakka til að hitta ykkur öll hress og kát eftir sumarið
Bestu kveðjur
Ásta Sjöfn og starfsfólk Reykhólaskóla
Til baka í fréttir